Frá tannlæknaferð til fjölskyldufyrirtækis í hjarta Búdapest

Saga Íslensku Klíníkurinnar í Búdapest hófst ekki með viðskiptaáætlun eða draumi um að reka tannlæknastofu. Hún hófst einfaldlega með tannlæknaferð.

Eigendur Íslensku Klíníkurinnar í dag eru hjónin Hjalti Garðarsson og Hrafnhildur Sigurðardóttir ásamt syni þeirra, Hauki Hjaltasyni. Fjölskyldan tók við rekstri stofunnar árið 2021 – en tengsl þeirra við hana ná mun lengra aftur.

Allt hófst árið 2013

Árið 2013 kom Hjalti fyrst til Búdapest til að fara sjálfur í tannlæknameðferð. Á þeim tíma bjó hann í Noregi ásamt hluta fjölskyldunnar og stofan var þá rekin af norskum fjárfestum.

Upplifun Hjalta varð upphafið að tengslum sem áttu eftir að breyta miklu. Hann kynntist þáverandi eigendum stofunnar vel og hélt sambandi við þá næstu árin.

Fimm árum síðar, árið 2018, kom Hrafnhildur sjálf til Búdapest í tannlæknaferð. Um svipað leyti spurðu eigendur stofunnar Hjalta hvort hann hefði áhuga á að taka að sér að aðstoða Íslendinga sem vildu koma til Búdapest í tannlækningar.

En hann ákvað að slá til.

Þegar Hjalti kom út með fyrsta hópinn varð honum fljótt ljóst að ef hann ætlaði að gera þetta, þá vildi hann gera það af heilum hug. Hann hringdi heim í Hrafnhildi og sagði:

„Annaðhvort tökum við þetta alla leið eða sleppum því.“

Það varð úr að hann sagði upp starfi sínu og helgaði sig verkefninu alfarið.

Liðið stækkar – á mjög kunnuglegan hátt

Eftir því sem fleiri Íslendingar komu til Búdapest jókst þörfin fyrir að hafa fólk á staðnum sem gæti tekið vel á móti þeim, leiðbeint og verið til staðar í gegnum ferlið.

Þá kom Oddný Jakobs inn í söguna.

Rétt eins og Hjalti og Hrafnhildur kynntist hún stofunni fyrst sem einstaklingur í tannlæknaferð. Hjalti sá fljótt að hún hefði nákvæmlega þá eiginleika sem hann vildi hafa í teyminu – hlýju, persónulega nálgun og hæfileikann til að láta fólki líða vel langt að heiman.

Þegar aðsóknin jókst bættist hún því við hópinn.

Þetta átti síðar eftir að verða nokkurs konar rauður þráður í sögu okkar: fólkið sem vinnur hjá okkur hefur sjálft upplifað hvernig það er að koma til Búdapest í tannlæknaferð.

Og það leið ekki á löngu þar til næsti fjölskyldumeðlimur fetaði sömu leið. Haukur Hjaltason, sonur Hjalta og Hrafnhildar, kom sjálfur til Búdapest í tannlæknameðferð.

Á þeim tíma hafði aðsókn Íslendinga að stofunni aukist hratt og mikið og Hjalti og Oddný höfðu í nógu að snúast við að taka á móti og aðstoða fólkið sem kom út. Haukur ákvað því að flytja sjálfur til Búdapest og leggja föður sínum lið samhliða því að byrja sína eigin meðferð. Haukur féll vel inn í starfið, naut þess að taka á móti fólki og aðstoða það í gegnum ferlið og fljótlega varð ljóst að hann væri kærkomin viðbót við hópinn.

Þannig bættist enn einn við teymið á sama hátt og svo margir á eftir honum – fyrst sem einstaklingur í tannlæknaferð, en síðar sem hluti af fólkinu sem tekur á móti öðrum og fylgir þeim í gegnum þeirra eigin ferð.

Þegar allt stöðvaðist

Svo kom árið 2020.

Kórónuveirufaraldurinn stöðvaði ferðalög og bæði tannlæknastofan og hótelið lokuðu. Í um tíu mánuði lá starfsemin niðri og norsku fjárfestarnir ákváðu að þeir vildu ekki halda rekstrinum áfram.

Þá stóð fjölskyldan frammi fyrir stórri ákvörðun.

Í stað þess að horfa á það sem hafði verið byggt upp hverfa ákváðu þau að taka málin í sínar hendur. Þau gerðu eigendunum tilboð í alla stofuna – með hurðum og gluggum.

Tilboðinu var tekið.

Þegar ferðalög hófust á ný opnaði stofan aftur og árið 2021 tók fjölskyldan formlega við rekstrinum.

Þar með hófst nýr kafli – Íslenska Klíníkin í Búdapest varð fjölskyldufyrirtæki.

Frá tannlæknastólnum til Búdapest

Árið 2021 kom Thelma Ósk Þórðardóttir sjálf til stofunnar í tannlæknaferð.

Hún heillaðist af stofunni, þjónustunni og lífinu í Búdapest – en sagan tók líka óvænta stefnu þegar hún kynntist Hauki Hjaltasyni.

Síðar sama ár flutti Thelma til Búdapest og hóf störf hjá Íslensku Klíníkinni. Í dag starfar hún enn með fjölskyldunni, er eiginkona Hauks og saman eiga þau barn.

En sagan um fólkið okkar stoppar ekki þar.

Árið 2024 kom Bryndís Ásmunds fyrst til okkar sem gestur í tannlæknaferð. Upplifunin varð til þess að ári síðar, árið 2025, bættist hún sjálf í hópinn. Í dag býr hún í Búdapest og starfar með okkur á staðnum.

Við vitum hvernig það er að vera hinum megin

Það sem gerir sögu okkar sérstaka er að hún hefur að stórum hluta verið skrifuð af fólki sem kom hingað fyrst í sömu sporum og fólkið sem við tökum á móti í dag.

Við vitum hvernig það er að ferðast til annars lands í tannlækningar. Við þekkjum spurningarnar, spennuna og jafnvel óöryggið sem getur fylgt því að stíga þetta fyrsta skref.

Kannski er það einmitt ástæðan fyrir því að persónuleg þjónusta og umhyggja skipta okkur svona miklu máli.

Við viljum að frá fyrstu samskiptum til heimferðar finni fólk að það sé ekki eitt í ferlinu. Að einhver sé til staðar, svari spurningunum, leiðbeini og taki á móti því þegar það kemur til Búdapest.

Í dag búa eigendur og ráðgjafar okkar í Búdapest og saman höfum við byggt upp stað sem við erum ótrúlega stolt af – með framúrskarandi tannlækningum, fagmennsku og gæðum að leiðarljósi, en líka þeirri persónulegu umhyggju sem hefur fylgt okkur frá upphafi.

Því fyrir okkur er Íslenska Klíníkin meira en tannlæknastofa. Hún er fjölskyldufyrirtæki sem varð til úr eigin reynslu – og þeirri einföldu hugsjón að veita öðrum þá þjónustu og það öryggi sem við myndum sjálf vilja fá.

Tannheilsa fyrir alla – með íslenskri umhyggju. 💙

Nokkrir góðir punktar

Um Íslensku Klínikina

Sömu tannlæknar og starfsmenn hafa starfað hjá okkur frá upphafi. Reynslan, fagmennskan og vandað handverk eru lykilþættir í þeirri þjónustu sem við veitum.

Á stofunni starfa fjórtán tannlæknar, allir með sérfræðimenntun á sínu sviði. Þetta gerir okkur kleift að bjóða upp á fjölbreyttar meðferðir undir einu þaki.

Tanngervasérfræðingar sjá um krónur, brýr og gervitennur. Einnig starfa hjá okkur skurðlæknar, sérfræðingar í rótfyllingum og sérfræðingar í tannholdssjúkdómum.

Allt aðstoðarfólk hefur sérhæfða menntun að baki, annað hvort þriggja ára nám á framhaldsskólastigi eða tveggja ára háskólanám.

Helstu meðferðir
  • Tannplantar (implönt)
  • Krónur og brýr
  • Beinuppbygging
  • Rótfyllingar
  • Stærri tannaðgerðir

Stofan endurnýjar reglulega tækjabúnað sinn og leggur mikla áherslu á símenntun og endurþjálfun starfsfólks.

Bæði íslenskar og norskar sjúkratryggingastofnanir samþykkja tannlæknaþjónustu frá Íslensku Klínikinni og greiða sinn hluta kostnaðar samkvæmt gildandi lögum og reglum.

Saga okkar