Við svörum öllu sem þú vilt vita
Algengar spurningar
Það er eðlilegt að hafa spurningar þegar kemur að tannlæknaferð erlendis.
Við viljum að þú hafir allar upplýsingar áður en þú tekur ákvörðun og því höfum við safnað saman þeim spurningum sem við fáum oftast.
Ef þú finnur ekki svarið hér er þér alltaf velkomið að hafa samband – við erum aðeins símtal eða skilaboð í burtu.
Algengar spurningar
Algengar spurningar
Það er eðlilegt að hafa spurningar þegar kemur að tannlæknaferð erlendis.
Við viljum að þú hafir allar upplýsingar áður en þú tekur ákvörðun og því höfum við safnað saman þeim spurningum sem við fáum oftast.
Ef þú finnur ekki svarið hér er þér alltaf velkomið að hafa samband – við erum aðeins símtal eða skilaboð í burtu.
Gisting nálægt Aquaworld Budapest
Á heimilisfanginu Íves út 16, 1044 Budapest er Aquaworld Resort Budapest, stórt 4-stjörnu hótel og heilsulind með beinum aðgangi að Aquaworld vatnagarðinum.
Í næsta nágrenni, í Újpest og norðurhluta Búdapest, eru tiltölulega fá hótel í göngufæri þar sem svæðið er að mestu leyti íbúðar- og grænt svæði. Flestir sem vilja dvelja sem næst Aquaworld velja því Aquaworld Resort sjálft.
Hótel í stuttri akstursfjarlægð frá Aquaworld
Hér fyrir neðan eru nokkur vel metin hótel sem eru staðsett í um það bil 5–15 mínútna akstursfjarlægð frá Aquaworld.
Újpest / Norður-Búdapest (u.þ.b. 5–10 mínútur)
Hotel Karin (★★★)
Fóti út 75, 1047 Budapest
Vinsælt og hagnýtt hótel með morgunverði og veitingastað. Oft nefnt sem eitt það næsta við
Aquaworld.
Vitta Hotel Superior (★★★+)
Váci út 27–29, 1047 Budapest
Hentar vel fyrir styttri dvöl eða viðskiptaferðir. Bílastæði og heilsulindarþjónusta í boði.
Holiday Beach Budapest Wellness & Conference Hotel (★★★)
Piroska utca 3–5, 1039 Budapest
Heilsulindarhótel við Dóná sem er vinsælt meðal þeirra sem vilja vera nálægt Aquaworld án þess
að gista á svæðinu sjálfu.
Óbuda / Margaret-eyja (u.þ.b. 10–15 mínútur)
Ensana Thermal Margaret Island (★★★★)
Margaret-eyja, Budapest
Heilsulindarhótel með varmaböðum í rólegu umhverfi.
Park Inn by Radisson Budapest (★★★★)
1138 Budapest
Nútímalegt hótel með góðu aðgengi og vinsælt hjá viðskiptaferðalöngum.
Dunakeszi (u.þ.b. 10 mínútur)
Kikelet Panzió
Dunakeszi
Lítið og rólegt gistiheimili sem hentar vel þeim sem kjósa að dvelja utan miðbæjarins.
Part Café Panzió
Dunakeszi
Notalegt gistiheimili með veitingastað og vinsæll kostur fyrir styttri dvöl.
Er öruggt að fara í tannmeðferð hjá ykkur?
Já. Við vinnum eftir ströngum evrópskum gæðastöðlum og notum nýjustu tækni ásamt hágæða efnum.
Við leggjum mikla áherslu á öryggi, fagmennsku og persónulega þjónustu til að tryggja að hver sjúklingur fái bestu mögulegu umönnun og meðferð.
Búdapest hefur um áratugaskeið verið þekkt sem ein helsta borg Evrópu fyrir tannlækningar. Þar starfa reynslumiklir tannlæknar með mikla sérþekkingu og nútímalegan búnað.
Hafðu einfaldlega samband við okkur. Við förum yfir stöðuna með þér og metum hvaða meðferð hentar best.
Þú hefur samband við okkur í síma eða með tölvupósti. Við svörum spurningum þínum og hjálpum þér að skipuleggja næstu skref.
Við bókum hóteldvölina og tannlæknatímana fyrir þig. Þú bókar flugið sem hentar þér best.
Við tökum á móti þér á flugvellinum í Búdapest og keyrum þig á Aquaworld Resort þar sem bæði hótelið og tannlæknastofan eru staðsett.
Nei. Þar sem tannlæknastofan er staðsett inni á hótelinu þarftu ekki að ferðast á milli staða fyrir meðferðina. Því næst er verslunar aðstaða og fleira í göngufæri frá okkur. Einnig er miðbærinn bara einni leigubíls ferð frá okkur.
Við byrjum á ítarlegri skoðun og röntgenmyndum. Að því loknu fer íslenskur ráðgjafi yfir niðurstöðurnar og meðferðaráætlunina með þér.
Verður einhver með mér sem mun geta talað við mig um málið mitt á íslensku?
Já. Íslenskir ráðgjafar okkar eru búsettir í Búdapest og fylgja þér í gegnum allt ferlið.
Já. Við leggjum áherslu á skýrar upplýsingar svo þú vitir alltaf hvað er fram undan.
Það fer eftir meðferðinni en flestar meðferðir taka 1–3 ferðir.
Við bjóðum upp á sérkjör á Superior-herbergjum á Aquaworld Resort, þar sem tannlæknastofan er einnig staðsett.
Já. Hótelið hentar mjög vel fyrir fjölskyldur og hægt er að útvega aukarúm eða ferðarúm fyrir yngri börn.
Notið sundlaugagarðinn, heilsulindina, veitingastaði hótelsins eða skoðið fallegu borgina Búdapest.
Það fer eftir umfangi hennar. Eftir skoðun færðu nákvæma meðferðaráætlun og verðtilboð.
Nei. Við leggjum áherslu á gagnsæi og förum yfir allan kostnað áður en meðferð hefst.
Við erum alltaf til staðar til að svara spurningum og veita ráðgjöf. Markmiðið er að þú finnir fyrir stuðningi, líka eftir að meðferð lýkur, því er best að byrja á að senda á okkur eða hringja og við leiðbeinum þér frekari.
Fyrsta ársskoðunin fer fram hjá okkur í Búdapest. Eftir það geta ársskoðanir farið fram á Íslandi samkvæmt samkomulagi.
Vegna þess að hjá okkur færðu: Íslenska ráðgjöf, Persónulega þjónustu, Skipulagt ferli frá upphafi til enda, Flugvallarakstur, Gistingin er staðsett á Aquaworld Resort, Tannlæknastofu á sama stað og hótelið, Stuðning alla leið
Aðrar spurningar
Hvað eru Inlay og Onlay?
Hvað er Inlay og Onlay?
Það er mjög lítill munur á Inlay og Onlay.
Báðar eru tannviðgerðir sem notaðar eru til að endurheimta tennur sem hafa orðið fyrir vægum eða miðlungs miklum skemmdum vegna tannátu, slits eða grunnra tannbrota.
Hvað eru Inlay og Onlay?
Fylgikvillar tannsteins og tannholdsbólgu
Ef tannskán er ekki fjarlægð reglulega með tannburstun getur tannsteinn myndast, sérstaklega undir tannholdinu.
Tannholdið getur þá orðið rautt, viðkvæmt og blætt við burstun.
Vasar geta myndast meðfram tönnunum og bólgan getur náð niður í dýpri lög tannvefsins.
Með tímanum getur þetta leitt til beinmissis og tannholdssjúkdóma (periodontitis).
Tennur geta losnað og að lokum fallið út ef ekkert er að gert.
Þess vegna er mikilvægt að fara reglulega í tannhreinsun.
Algengar aðferðir eru meðal annars hefðbundin hreinsun, sandblástur og Airflow EMS tannhreinsun.
Hvað eru Inlay og Onlay?
Helstu kostir Airflow EMS tannhreinsunar
- Fjarlægir tannstein hraðar og auðveldar.
- Verkjalaus og þægileg meðferð.
- Fjarlægir bletti af tönnum.
- Hjálpar til við að útrýma bakteríum í tannholdsvösum.
- Dregur úr hættu á tannátu og tannholdssjúkdómum.
- Gerir tannhvíttun árangursríkari.
- Lágmarks ífarandi meðferð.
- Stillanlegt hitastig vatns fyrir viðkvæmar tennur.
- Brosið verður bjartara og heilbrigðara eftir eina heimsókn.
- Hægt að nota á fasettur, krónur, brýr og ígræðslur.
Hvað eru Inlay og Onlay?
Leiðbeiningar fyrir góma
- Setjið góma upp að kvöldi fyrir svefn eftir burstun tannanna.
- Að morgni, þegar búið er að fjarlægja góma, eru tennurnar burstaðar og munnurinn skolaður vel.
- Þrífið góma vel með köldu vatni eftir hverja notkun. Notið tannbursta til að bursta gómana að innan.
- Hvorki borðið né drekkið á meðan gómurinn er í munni.
Algengar spurningar um rótfyllingu
- Er rótfylling sársaukafull?
- Nei, og ekki er alltaf nauðsynlegt að beita deyfingu fyrir meðferð. Hins vegar kjósa margir
undantekningalaust að láta deyfa sig. Við það dofnar tönnin. Stundum er þó erfitt að deyfa
tennur sem í er mikil bólga. - Hvernig er rótfylling framkvæmd?
- Vefirnir innan í rótargöngunum eru fjarlægðir og rótargöngin formuð til. Rótfyllingarefninu
er síðan komið í rótargöngin þegar þau hafa verið fullhreinsuð. - Hversu langan tíma tekur rótfylling?
- Algengast er að sjúklingur þurfi að koma í tvö til þrjú skipti til meðferðar hjá tannlækni.
Erfið tilfelli krefjast þó fleiri heimsókna. - Hve lengi endist rótfyllta tönnin?
- Þótt rótfylltar tennur geti verið stökkar, þá endast þær eins og aðrar tennur sé tryggilega
gert við þær, til dæmis með krónugerð. - Hver er munurinn á rótfyllingu og venjulegri fyllingu í tönn?
- Rótfylling er sett ofan í rótargöngin. Fylling eða króna er sett í eða á tannkrónuna en
oftast er skipt um fyllingu í tönninni nokkrum sinnum eða krónur endurnýjaðar. Rótfylling
þarf aftur á móti helst að duga líftíma tannarinnar. Í sumum tilfellum er þó nauðsynlegt að
endurrótfylla tönn hverfi sýking ekki við fyrstu meðferð. - Hverjar eru batahorfur eftir rótfyllingu?
- Batahorfur eru venjulega um 80–90%. Þetta er svolítið mismunandi eftir tilfellum. Hverfi
sýking ekki er mögulegt að endurmeðhöndla tönnina eða gera rótarendaaðgerð á henni. - Hvernig er líðan eftir meðferð?
- Oftast nær minnkar sá verkur eða hverfur sem verið hefur fyrir. Þó getur verið nauðsynlegt
að taka væg verkjalyf í einn til tvo daga eftir heimsókn. Ef bólga myndast eða mikill verkur
er ráðlegt að hafa strax samband við viðkomandi tannlækni. - Dökknar tönnin eftir rótfyllingu?
- Yfirleitt dökkna tennur ekki eftir rótfyllingu hafi hreinsun rótarganganna gengið að óskum.
Þetta getur þó gerst. Þá er mjög oft unnt að lýsa tönnina. Sé það ekki hægt þarf að setja
krónu á tönnina. - Hvernig er tilfinning í tönn sem hefur verið rótarfyllt?
- Þú átt ekki að hafa óþægindi í tönninni til frambúðar. Gerist það er það merki um að eitthvað
sé að. Hafðu þá samband við tannlækninn þinn. Tönnin er ekki dauð eftir rótfyllingu.
Rótaryfirborðið nærist frá vefjunum umhverfis tönnina. - Er meðferð lokið strax eftir rótarfyllingu?
- Nei, mjög áríðandi er að setja fyllingu í eða
Leiðbeiningar eftir tanndrátt
- Ekki skola munninn fyrstu klukkustundirnar eftir aðgerð.
Það er í lagi að drekka kalda tæra drykki, svo lengi sem þeim er ekki velt um munninn heldur
kyngt strax.Það er í lagi að bursta tennurnar en varastu að bursta sárið. Það þarf ekki að skola munninn
eftir tannburstun.Á öðrum degi og fram að saumatöku er gott að skola munninn tvisvar sinnum á dag með
sótthreinsandi munnskoli. - Ekki borða fyrr en deyfing er farin úr.
Haltu þig við fljótandi eða mjúkt fæði fyrstu dagana eftir tanndráttinn. Borðaðu aðeins
kaldan mat fyrsta sólarhringinn.Ekki nota sogrör.
- Það er eðlilegt að fram komi bólga eftir tanndrátt.
Hún nær hámarki á öðrum degi eftir úrdráttinn og er venjulega horfin eftir viku.
- Væg blæðing er eðlileg fyrsta sólarhringinn.
Munnvatn getur verið ögn blóðlitað. Ef blæðir úr sárinu dugar oftast að leggja hreina grisju
yfir sárið og bíta þétt niður í 5–10 mínútur. - Búast má við eymslum og verk í sárinu fyrstu dagana.
Mikilvægt er að nota verkjalyf eins og þarf.
Hjá okkur fáið þið Cataflam (Voltaren), sem er verkjastillandi og bólgueyðandi. Ef þið eruð
með viðkvæman maga, þá fáið þið Algoflex (Íbúfen). - Ef verkir versna þremur til fjórum dögum eftir aðgerð.
Þá getur verið að blóðstorkan í sárinu hafi losnað. Þetta er nefnt „dry socket“ og er
tiltölulega einfalt að meðhöndla. Hafðu samband við okkur sem fyrst ef þetta gerist. - Sýklalyf eftir tanndrátt.
Almennt ávísum við ekki sýklalyfjum eftir tanndrátt hjá heilbrigðum einstaklingum.
Á þessu eru þó undantekningar. Ef sýklalyfjum hefur verið ávísað, þá er mikilvægt að taka
þau. Sýklalyf geta valdið aukaverkunum og ef það gerist, hafðu þá samband við okkur.
Hvað eru Inlay og Onlay?
Tannholdsbólga Tannholdsbólga er einn algengasti sjúkdómur í munnholi. Fólk finnur yfirleitt ekki nein einkenni á byrjunarstigi sjúkdómsins og því getur hún verið hættuleg sökum þess hve lítið hún lætur yfir sér. Samkvæmt tímaritinu International Dental Journal eru bólgusjúkdómar í stoðvefjum tanna á meðal þeirra munnholssjúkdóma sem teljast alvarleg ógn við lýðheilsu. Áhrif þeirra á einstaklinga og samfélög, hvað varðar verki, vanlíðan, líkamlega getu og lífsgæði, geta verið umtalsverð. Þú getur dregið úr hættunni á tannholdsbólgu með því að fræðast um þennan útbreidda sjúkdóm og sinna reglulegri munnhirðu.Hvað eru Inlay og Onlay?
Staðreyndir um tannholdsbólgu Bólgum í stoðvefjum tanna má skipta niður í tvö stig. Fyrra stigið kallast tannholdsbólga (gingivitis) og lýsir sér þannig að bólga myndast í tannholdinu. Algengt einkenni er blæðing úr tannholdi við tannburstun, notkun tannþráðar eða jafnvel án sjáanlegrar ástæðu. Ef blæðir úr tannholdinu við skoðun hjá tannlækni getur það einnig verið merki um tannholdsbólgu. Ef ekkert er að gert getur tannholdsbólga þróast yfir í tannvegsbólgu (periodontitis). Þá byrja bein, tannhold og aðrir stoðvefir sem halda tönnunum föstum að eyðast. Einkenni tannvegsbólgu koma stundum ekki í ljós fyrr en sjúkdómurinn er kominn á alvarlegt stig. Meðal einkenna eru:- Tannholdspokar
- Lausar tennur
- Andremma
- Blæðing úr tannholdi
- Bil sem myndast á milli tanna
- Tannhold sem hörfar frá tönnum og lætur þær virðast lengri
Hvað eru Inlay og Onlay?
Orsakir og afleiðingar Nokkrir þættir geta aukið hættuna á tannholdsbólgu. Algengasta orsökin er tannsýkla, bakteríuskán sem myndast reglulega á yfirborði tanna. Ef tannsýklan er ekki fjarlægð geta bakteríurnar valdið bólgu í tannholdinu. Þegar bólgan ágerist byrjar tannholdið að losna frá tönnunum og bakteríurnar geta smeygt sér undir tannholdsbrúnina. Þar breiðist bólgan út og byrjar að eyða bæði beinum og tannholdi. Tannsýklan getur jafnframt harðnað og orðið að tannsteini, bæði fyrir ofan og neðan tannholdsbrúnina. Yfirborð tannsteins er þakið bakteríum. Þar sem hann er harður og loðir fast við tennurnar er erfiðara að fjarlægja hann en tannsýklu. Þannig geta bakteríurnar haldið áfram að valda skemmdum á tannholdinu.Hvað eru Inlay og Onlay?
Orsakir tannsteins Hin ýmsu efni sem eru í munnholinu geta sest sem filma á yfirborð tannarinnar. Þessi filma getur verið mjúk, hörð, gegnsæ eða lituð og gegnir mikilvægu hlutverki í þróun sjúkdóma í tannvef. Filman myndast á tannflötum sem ekki hafa verið hreinsaðir nægilega vel og samanstendur aðallega af bakteríum. Ef filman kalkar, þar sem kalksteinn sest í hana, myndast hörð útfelling sem kallast tannsteinn. Ýmis litarefni, svo sem frá kaffi, tei, kóki og reykingum, geta mislitað bæði tennur og tannstein. Tannsteinn getur myndast bæði fyrir ofan og neðan tannholdið. Algengast er að finna stærstu útfellingarnar nálægt opum stóru munnvatnskirtlanna.Hvað eru Inlay og Onlay?
Fylgikvillar Ef filman er ekki fjarlægð reglulega með góðri tannhirðu geta myndast bólgur í tannholdi, sérstaklega þar sem tannsteinn hefur safnast fyrir undir tannholdinu. Þá getur tannholdið orðið rautt, aumt og byrjað að blæða við tannburstun. Tannholdið getur einnig losnað frá tönnunum og myndað svokallaða tannholdsvasa. Bólgan getur síðan breiðst niður í dýpri lög tannvefsins og valdið beinmissi. Þetta getur leitt til tannholdssjúkdóma (periodontitis), sem geta valdið því að tennur losna og jafnvel falli út. Af þessum ástæðum er mikilvægt að fara reglulega í tannhreinsun. Til eru nokkrar aðferðir við slíka hreinsun, þar á meðal sandblástur og Airflow EMS tannhreinsun.Hvað eru Inlay og Onlay?
Helstu kostir Airflow EMS tannhreinsunar- Fjarlægir mikla uppsöfnun tannsteins hraðar og auðveldar en hefðbundin hreinsun.
- Verkjalaus og þægileg meðferð.
- Fjarlægir bletti og litabreytingar af tönnum.
- Nær inn í tannholdsvasa og hjálpar til við að útrýma skaðlegum bakteríum.
- Getur hjálpað til við að fyrirbyggja tannátu og tannholdssjúkdóma.
- Gerir tannhvíttun árangursríkari með því að fjarlægja uppsöfnun á yfirborði tanna.
- Lágmarks ífarandi aðferð sem er þægileg fyrir sjúklinginn.
- Hægt er að stilla hitastig vatnsins, sem hentar vel fólki með viðkvæmar tennur.
- Brosið verður bjartara og heilbrigðara eftir aðeins eina heimsókn.
- Hægt er að nota meðferðina á fasettur, krónur, brýr og ígræðslur (implant).
Hvað eru Inlay og Onlay?
Hvað ræður lit tanna? Litur tanna ræðst annars vegar af lit tannbeinsins og hins vegar af yfirborðslit tannanna, svo sem tannsteini og öðrum óhreinindum sem safnast á þær. Yfirborðslitur tanna verður meðal annars fyrir áhrifum frá dökkum drykkjum, reykingum, tannsteini og öðrum efnum sem setjast á tennurnar. Sumir eru með dekkri tennur frá náttúrunnar hendi vegna þess að tannbeinið er dekkra að lit. Silfurfyllingar geta einnig valdið dekkri lit, sem og eldri viðgerðir úr postulíni eða plasti. Slitnar tennur taka lit hraðar en óslitnar tennur.Hvað eru Inlay og Onlay?
Hvað ber að hafa í huga þegar tennur eru hvíttaðar? Til að ná sem bestum árangri þarf að meta hvert tilfelli fyrir sig. Mismunandi orsakir litabreytinga geta krafist ólíkra meðferða til að ná fram bjartara brosi. Mikilvægt er að greina hvaðan liturinn kemur og velja þá meðferð sem hentar best. Meðferðin þarf að vera örugg fyrir tennur og aðliggjandi vefi og jafnframt skila raunverulegum árangri.Hvað eru Inlay og Onlay?
Getur tannhvíttun eyðilagt tennur? Tannhvíttun ætti aðeins að framkvæma þegar tennur og munnhol eru heilbrigð. Ekki má hvítta tennur sem eru með skemmdir eða gallaðar fyllingar. Einstaklingar með mjög slitnar tennur eða bert tannbein eru líklegri til að finna fyrir aukaverkunum. Hið sama á við um mjög unga einstaklinga þar sem tannkvikan er stærri. Nýjustu tannhvíttunarefnin innihalda flúor og önnur uppbyggjandi efni fyrir tennur og valda almennt ekki skaða ef þau eru notuð í réttum styrk. Ofnotkun eða of sterkar lausnir geta hins vegar valdið skaða á bæði tönnum og tannholdi. Því er mikilvægt að tannhvíttun fari fram í samráði við tannlækni og aðeins eftir ítarlega skoðun á tönnum og munnholi.Hvað eru Inlay og Onlay?
Geta allir farið í tannhvíttun? Nei. Tannhvíttun skilar ekki sömu niðurstöðum hjá öllum. Hún virkar best á heilar, gulleitar tennur. Tannhvíttun hefur hins vegar ekki áhrif á fyllingar, postulínsviðgerðir, svarbláar tennur sem hafa litast af silfurfyllingum eða fasta litun í sprungum í glerungi.Hvað eru Inlay og Onlay?
Hvað endist tannhvíttun lengi? Ending tannhvíttunar fer eftir ástandi tannanna áður en meðferð hefst. Heilar tennur verða sjaldnast jafn dökkar aftur og áður. Algengt er að viðhalda þurfi árangrinum með endurnýjun á um tveggja til þriggja ára fresti. Hvíttun á slitnum tönnum er erfiðari og þær dökkna hraðar aftur þar sem bert tannbein dregur í sig litarefni. Oft þarf að laga slit með tannlituðum fyllingum til að viðhalda ljósari lit og draga úr líkum á frekari litun í framtíðinni.Hvað eru tannplantar (implönt)?
Tannplantar (implönt) eru skrúfur úr títaníummálmi sem hægt er að græða í kjálkabein.
Tannplanti kemur í stað tannrótar sem hefur tapast eða vantar.
Þegar tannplanti kemur í stað tönnar sem hefur tapast er hann settur þar sem rót tannarinnar
var áður. Ofan á tannplantann er síðan smíðuð króna sem líkist náttúrulegri tönn.
Tannplantar eru einnig notaðir þegar margar tennur vantar. Þá eru tveir eða fleiri
tannplantar settir með millibili og brú smíðuð ofan á þá.
Tannplantar undir tanngervi
Hvernig er þeim komið fyrir?
Þegar tannplanta er komið fyrir í kjálkabeini er aðgerðin framkvæmd í staðdeyfingu.
Þetta er yfirleitt ekki mikil aðgerð. Tannholdinu er ýtt til hliðar, borað fyrir
tannplantanum og honum komið fyrir. Að lokum er tannholdið saumað saman með sjálfuppleysandi
saumum.
Misjafnt er eftir einstaklingum hversu lengi tannplantinn er að gróa. Algengast er að
gróandi taki 6–12 vikur, þó í einstaka tilfellum geti hann tekið lengri tíma.
Þegar tannplantinn hefur gróið að fullu situr hann fastur í beininu og getur borið krónu,
brú eða verið festing fyrir lausan góm.
Tanngervi smíðuð á implöntum
Fimm ástæður fyrir því að fá tannplanta
- Tannplantar bjóða upp á varanlega lausn sem lítur náttúrulega út.
- Þegar fyllt er upp í skarð með tannplanta er ekki nauðsynlegt að slípa niður
nágrannatennur og þær halda sínu náttúrulega útliti. - Tannplantar hjálpa til við að viðhalda kjálkabeini sem annars getur rýrnað vegna
tannmissis. - Tannplantar geta haldið heilgómum stöðugum með sérstakri smellufestingu og aukið
öryggi við að tala, borða og brosa. - Reynsla og rannsóknir sýna að tannplantar geta aukið lífsgæði og bætt vellíðan.
Tannplantar – lausn til framtíðar
Tannplantar eru mjög góð lausn til að bæta upp fyrir tennur sem hafa tapast eða aldrei
myndast. Þeir draga úr rýrnun kjálkabeins og hjálpa öðrum tönnum að halda sinni stöðu.
Með tannplöntum getur þú brosað, tuggið og talað á eðlilegan hátt. Þeir geta einnig haft
jákvæð áhrif á útlit og sjálfsöryggi.
Stundum getur lítill hlutur eins og tannplanti haft mikil áhrif á brosið. Tennur eru
mikilvægur þáttur í útliti og lífsstíl í nútímasamfélagi.
Fallegt bros eykur almenna vellíðan og heilbrigðar tennur stuðla að betri lífsgæðum,
sterkari sjálfsmynd og auknu sjálfstrausti.
Heilbrigðar tennur eru ekki sjálfsagðar
Að baki hverri tönn sem hefur tapast getur legið saga um slys, tannskemmdir,
tannholdssjúkdóma eða arfgenga tannvöntun.
Missir einnar eða fleiri tanna getur valdið erfiðleikum við tyggingu. Tennurnar sem eftir
eru verða fyrir auknu álagi og meiri hættu á að brotna eða skemmast.
Við tannmissi rýrnar beinið sem umlykur tannrótina og það getur haft áhrif á bæði bit og
andlitsútlit.
Tannmissir getur einnig haft áhrif á tal og framburð.

