Við byrjuðum öll sem gestir hjá Íslensku Klíníkinni Búdapest.
Við komum hingað með væntingar eins og svo margir aðrir – en það sem við upplifðum fór langt fram úr því sem við bjuggumst við.
Það sem sat eftir hjá okkur var ekki bara fallega brosið heldur upplifunin sjálf.
Persónuleg þjónusta, hlýjar móttökur, einlæg umhyggja frá öllu starfsfólkinu, framúrskarandi gæði, nýjasta tæknin, öryggið og traustið sem við fundum frá fyrstu stundu. Aðstaðan var einstök og allt ferlið skipulagt af fagmennsku sem gaf okkur algjöran hugarró.
Smám saman leiddi eitt af öðru.
Við urðum svo hrifin af klíníkinni og fólkinu sem hér starfar að við fengum tækifæri til að verða hluti af þessu frábæra teymi – og það er ákvörðun sem við sjáum alls ekki eftir.
Í dag höfum við þann heiður að taka á móti Íslendingum sem eru að stíga sömu skref og við tókum sjálf.
Við vitum hvernig það er að vera í þínum sporum. Þess vegna leggjum við okkur fram um að þú finnir fyrir öryggi, hlýju og persónulegri þjónustu frá fyrsta símtalinu þar til meðferð lýkur.
Við erum alltaf til staðar til að svara spurningum, leiðbeina þér og styðja þig í gegnum allt ferlið.
Um Íslensku Klínikina
Sömu tannlæknar og starfsmenn hafa verið hjá okkur frá upphafi. Reynsla, fagmennska og vandað handverk eru lykillinn að þeirri þjónustu sem við veitum.
Á stofunni starfa fjórtán tannlæknar, allir með sérfræðimenntun á sínu sviði.
Hjá okkur starfa tanngervasérfræðingar sem sinna krónugerð og gervitönnum, auk skurðlækna, rótfyllingarsérfræðinga og sérfræðinga í tannholdssjúkdómum.
Allt aðstoðarfólk hefur sérhæfða menntun að baki, annað hvort þriggja ára nám á framhaldsskólastigi eða tveggja ára háskólanám.
Helstu meðferðir
- Tannplantar (implönt)
- Krónur og brýr
- Beinuppbygging
- Rótfyllingar
- Stærri tannaðgerðir
Stofan endurnýjar reglulega tækjabúnað sinn og leggur mikla áherslu á símenntun og endurþjálfun starfsfólks.
Bæði íslenskar og norskar sjúkratryggingastofnanir samþykkja tannlæknaþjónustu frá Íslensku Klínikinni og greiða sinn hluta kostnaðar samkvæmt gildandi lögum og reglum.
Nokkrir góðir punktar
Um Íslensku Klínikina
Sömu tannlæknar og starfsmenn hafa starfað hjá okkur frá upphafi. Reynslan, fagmennskan og vandað handverk eru lykilþættir í þeirri þjónustu sem við veitum.
Á stofunni starfa fjórtán tannlæknar, allir með sérfræðimenntun á sínu sviði. Þetta gerir okkur kleift að bjóða upp á fjölbreyttar meðferðir undir einu þaki.
Tanngervasérfræðingar sjá um krónur, brýr og gervitennur. Einnig starfa hjá okkur skurðlæknar, sérfræðingar í rótfyllingum og sérfræðingar í tannholdssjúkdómum.
Allt aðstoðarfólk hefur sérhæfða menntun að baki, annað hvort þriggja ára nám á framhaldsskólastigi eða tveggja ára háskólanám.
Helstu meðferðir
- Tannplantar (implönt)
- Krónur og brýr
- Beinuppbygging
- Rótfyllingar
- Stærri tannaðgerðir
Stofan endurnýjar reglulega tækjabúnað sinn og leggur mikla áherslu á símenntun og endurþjálfun starfsfólks.
Bæði íslenskar og norskar sjúkratryggingastofnanir samþykkja tannlæknaþjónustu frá Íslensku Klínikinni og greiða sinn hluta kostnaðar samkvæmt gildandi lögum og reglum.

