Aquaworld vatnaveröldin með í pakkanum!

Aðgangur að Aquaworld innifalinn í gistingu

Við bjóðum gestum okkar enn betri upplifun því aðgangur að vatnaveröldinni Aquaworld fylgir nú með gistingu.

Með samstarfi okkar hefur tekist að tryggja gestum frían aðgang að þessum vinsæla vatnagarði, sem er tilvalinn staður til að slaka á og endurnæra sig eftir meðferð eða ferðalag.

Í Aquaworld má finna fjölbreytt úrval sundlauga, gufubaða og rennibrauta fyrir alla aldurshópa. Margir gestir nýta sér einnig heitu pottana til að njóta afslöppunar og góðs félagsskapar.

Oriental Spa

Á hótelinu er einnig Oriental Spa þar sem boðið er upp á fjölbreyttar heilsu- og snyrtimeðferðir í notalegu umhverfi.

Þar er meðal annars hægt að fara í nudd hjá reyndum nuddurum og njóta afslappandi stundar eftir annasaman dag.

Snyrti- og vellíðunarmeðferðir

Oriental Spa býður einnig upp á fjölbreytt úrval snyrtimeðferða, þar á meðal hárgreiðslu, fótsnyrtingu, naglasnyrtingu og fleiri vinsælar meðferðir sem stuðla að vellíðan og slökun.

Við mælum með að gestir kynni sér úrval meðferða og verð við komu þar sem þjónusta og verð geta breyst með tímanum.

Aquaworld