Tannplantar (implönt)

Hvað eru tannplantar (implönt)?

Tannplantar (implönt) eru skrúfur úr títaníummálmi sem hægt er að græða í kjálkabein. Þeir koma í stað tannrótar sem hefur tapast eða vantar.

Þegar tannplanti kemur í stað tönnar sem hefur tapast er hann settur þar sem rót tannarinnar var. Ofan á hann er síðan smíðuð króna sem líkist raunverulegri tönn.

Tannplantar eru einnig notaðir þegar margar tennur vantar. Þá eru tveir eða fleiri tannplantar settir með millibili og brú smíðuð ofan á þá.

Tannplantar undir tanngervi

Tannplantar geta einnig verið notaðir sem festing undir tanngervi og veita þannig aukinn stöðugleika og betri þægindi í daglegu lífi.

Hvernig er þeim komið fyrir?

Þegar tannplanta er komið fyrir í kjálkabeini er aðgerðin framkvæmd í staðdeyfingu.

Þetta er yfirleitt ekki stór aðgerð. Tannholdinu er ýtt til hliðar, borað er fyrir tannplantanum og honum komið fyrir. Að lokum er tannholdið saumað saman með sjálfuppleysandi saumum.

Misjafnt er eftir einstaklingum hversu lengi tannplantinn er að gróa. Algengast er að gróandi taki 6–12 vikur, þó í einstaka tilfellum geti hann tekið lengri tíma.

Þegar tannplantinn hefur gróið að fullu situr hann fastur í beininu og getur borið krónu, brú eða verið festing fyrir lausan góm.

Tanngervi smíðuð á implöntum

Tanngervi sem fest eru á tannplanta geta aukið stöðugleika, þægindi og öryggi fyrir notandann samanborið við hefðbundna lausa góma.

Fimm ástæður fyrir því að fá tannplanta
  • Tannplantar eru varanleg lausn sem hefur náttúrulegt útlit.
  • Þeir vernda nágrannatennur þar sem ekki þarf að slípa þær niður.
  • Þeir hjálpa til við að viðhalda kjálkabeini sem annars gæti rýrnað.
  • Þeir veita betri festu fyrir góma og auka öryggi við tal, tyggingu og bros.
  • Rannsóknir og reynsla sýna að tannplantar geta bætt lífsgæði verulega.
Tannplantar – lausn til framtíðar

Tannplantar eru mjög góð lausn til að bæta upp fyrir tennur sem hafa tapast eða aldrei myndast. Þeir draga úr rýrnun kjálkabeins og hjálpa öðrum tönnum að halda sinni stöðu.

Með tannplöntum getur þú brosað, tuggið og talað á eðlilegan hátt. Þeir geta einnig haft jákvæð áhrif á útlit og sjálfsöryggi.

Stundum getur einn tannplanti haft mikil áhrif á útlit brosins. Tennur eru mikilvægur þáttur í bæði útliti og lífsstíl.

Fallegt bros eykur vellíðan og heilbrigðar tennur stuðla að betri lífsgæðum, sterkari sjálfsmynd og auknu sjálfstrausti.

Heilbrigðar tennur eru ekki sjálfsagðar

Að baki hverri tönn sem hefur tapast getur legið saga um slys, tannskemmdir, tannvegssjúkdóma eða arfgenga tannvöntun.

Missir einnar eða fleiri tanna getur valdið erfiðleikum við tyggingu. Tennurnar sem eftir eru verða fyrir auknu álagi og meiri hættu á að brotna eða skemmast.

Við tannmissi rýrnar beinið sem umlykur tannrótina og það getur haft áhrif á bæði bit og útlit.

Tannmissir getur einnig haft áhrif á tal og framburð.