Eftir tanndrátt

1. Munnskol og tannhirða

Ekki skola munninn fyrstu klukkustundirnar eftir aðgerð. Það er í lagi að drekka kalda tæra drykki, svo lengi sem þeim er ekki velt um munninn heldur kyngt strax.

Það er í lagi að bursta tennurnar en varastu að bursta sárið. Það þarf ekki að skola munninn eftir tannburstun.

Á öðrum degi og fram að saumatöku er gott að skola munninn tvisvar sinnum á dag með sótthreinsandi munnskoli.

2. Matur og drykkur

Ekki borða fyrr en deyfing er farin úr.

Haltu þig við fljótandi eða mjúkt fæði fyrstu dagana eftir tanndráttinn. Borðaðu aðeins kaldan mat fyrsta sólarhringinn.

Ekki nota sogrör.

3. Bólga

Það er eðlilegt að fram komi bólga eftir tanndrátt. Hún nær hámarki á öðrum degi eftir úrdráttinn og er venjulega horfin eftir viku.

4. Blæðing

Væg blæðing er eðlileg fyrsta sólarhringinn og getur munnvatn verið ögn blóðlitað.

Ef blæðir úr sárinu dugar oftast að leggja hreina grisju yfir sárið og bíta þétt niður í 5–10 mínútur.

5. Verkir og verkjalyf

Búast má við eymslum og verk í sárinu fyrstu dagana. Mikilvægt er að nota verkjalyf eins og þarf.

Hjá okkur fáið þið Cataflam (Voltaren), sem er verkjastillandi og bólgueyðandi.

Ef þið eruð með viðkvæman maga, þá fáið þið Algoflex (Íbúfen).

6. Dry Socket

Ef verkir versna þremur til fjórum dögum eftir aðgerð, þá getur verið að blóðstorkan í sárinu hafi losnað.

Þetta er nefnt „dry socket“ og er tiltölulega einfalt að meðhöndla.

Hafðu samband við okkur sem fyrst ef þetta gerist.

7. Sýklalyf

Almennt ávísum við ekki sýklalyfjum eftir tanndrátt hjá heilbrigðum einstaklingum.

Á þessu eru þó undantekningar.

Ef sýklalyfjum hefur verið ávísað, þá er mikilvægt að taka þau.

Sýklalyf geta valdið aukaverkunum og ef það gerist, hafðu þá samband við okkur.

Eftir tanndrátt