Ábyrgðarskilmálar

Ábyrgð á meðferðum
  • Krónur, brýr og fasettur (ekki tímabundnar): 5 ár
  • Postulínsinnlegg og álegg (ekki tímabundið): 5 ár
  • Tannplantar (implant skrúfa og stoðhlutir): 10 ár
  • Tannpartar, fastir gómar og smellukerfi: 3 ár
  • All-on-4 tanngervi: 1 ár
  • Tanngervi (ekki tímabundin): 1 ár
  • Fyllingar og samsettar fyllingar (ekki tímabundnar)

Ábyrgð gildir aðeins ef árlegt eftirlit er framkvæmt innan 365 daga frá lokum meðferðar og síðan árlega á ábyrgðartímabilinu.

Fyrsta árlega eftirlitið verður að fara fram hjá Íslensku Klíníkinni í Búdapest.

Mikilvægar upplýsingar

Ábyrgð á krónum og brúm nær ekki til undirliggjandi tanna. Ef tönn sem ber krónu eða brú þarf síðar rótfyllingu, fellur það ekki undir ábyrgðina.

Viðskiptavinur skal vera meðvitaður um að líkur eru á að tennur undir krónu, brú eða innleggi geti þurft rótfyllingu síðar.

Ábyrgðin nær til þess ef tennur losna úr tanngervum eða ef föst tanngervi brotna, að því gefnu að reglulegt eftirlit hafi farið fram og skilmálum hafi verið fylgt.

Ekki er veitt ábyrgð á tímabundnum meðferðum eða tímabundnum lausnum, svo sem tímabundnum fyllingum, krónum, brúm eða tanngervum.

Eðlilegar lagfæringar og aðlögun tanngerva vegna breytinga í kjálka eða munnholi teljast ekki ábyrgðarmál.

Endanlegt mat á ábyrgð er alltaf gert af tannlækni eða sérfræðingi hjá Íslensku Klíníkinni í Búdapest.

Stoðtækjavinna og fagurfræði

Ábyrgð á stoðtækjavinnu tekur ekki til huglægrar óánægju með lit, lögun eða útlit þegar viðskiptavinur hefur samþykkt vinnuna áður en hún var afhent.

Óski viðskiptavinur eftir breytingum eftir afhendingu vegna slíkra atriða ber hann sjálfur kostnað af þeirri vinnu.

Tannholdssjúkdómar og almenn heilsa

Við tannholdssjúkdóma ber viðskiptavini að viðhalda góðri munnhirðu og mæta í reglulegt eftirlit og tannhreinsun samkvæmt ráðleggingum tannlæknis.

Mælt er með tannhreinsun á sex mánaða fresti hjá einstaklingum með tannholdssjúkdóma.

Fyrir sjúklinga með sykursýki gilda sérstakar reglur. Ábyrgð getur fallið niður ef undirliggjandi sjúkdómar hafa áhrif á gróanda eða festingu tannplantanna.

Tilkynning um vandamál

Ef vandamál koma upp eftir meðferð skal hafa samband við Íslensku Klínikina í Búdapest eins fljótt og auðið er.

Best er að senda nákvæma lýsingu á vandamálinu ásamt myndum ef mögulegt er. Klíníkin mun hafa samband eins fljótt og auðið er á næsta virka degi.

Ábyrgðin fellur niður ef
  • Árlegt eftirlit er ekki framkvæmt samkvæmt leiðbeiningum.
  • Ekki er farið eftir fyrirmælum tannlæknis.
  • Munnhirða er ófullnægjandi.
  • Ráðlögð tannhreinsun og eftirlit eru ekki framkvæmd.
  • Viðskiptavinur yfirgefur meðferð áður en henni er lokið samkvæmt ráðleggingum.
  • Annar tannlæknir framkvæmir breytingar án samþykkis Íslensku Klínikinnar.
  • Viðskiptavinur reykir og um er að ræða tannplanta eða tengda tannsmíði.
  • Alvarlegir sjúkdómar eða meðferðir hafa áhrif á niðurstöðu meðferðarinnar.
Ábyrgðarferli

Komi upp ábyrgðarmál skal hafa samband við ráðgjafa Íslensku Klínikinnar áður en frekari meðferð er hafin.

Ef þörf er á skoðun hjá tannlækni á heimastað getur klíníkin tekið þátt í þeim kostnaði samkvæmt gildandi skilmálum, gegn framvísun kvittana og nauðsynlegra gagna.

Ef nauðsynlegt reynist að snúa aftur til Búdapest verður ábyrgð og möguleg endurgreiðsla ferðakostnaðar metin að lokinni skoðun sérfræðings.

Tekjutap, kostnaður vegna matar og drykkjar eða kostnaður ferðafélaga fellur ekki undir ábyrgðarskilmála.

Ábyrgðarskilmálar